Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9829
Markmið þessarar BS.c ritgerðar er að skoða tækifæri tengd notkun nýrra orkugjafa í samgöngum og þá að varpa ljósi á það hvaða vegir eru færir í þeim efnum. Einnig að athuga hver staðan er í innleiðingu á helstu umhverfisvænum orkugjöfum hér á landi.
Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem viðtöl voru tekin við þá helstu frumkvöðla sem annað hvort vinna við þróun eða innleiðingu á umhverfisvænum orkugjöfum.
Helsu niðurstöður voru þær að hér á landi eru nægar auðlindir og tækniþekking til að innleiða umhverfisvæna orkugjafa. Ein af aðalhindrunum er að mati rannsakenda aðgerðaleysi stjórnvalda. En til þess að innleiðing geti átt sér stað á umhverfisvænum orkugjöfum þurfa stjórnvöld að vera leiðandi, sýna frumkvæði og taka ákvörðun um hvaða leiðir skuli fara í þeim efnum. Umhverfisvænir orkugjafar eru komnir á nokkuð góðan rekspöl en betur má ef duga skal.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Umhverfisvænir orkugjafar - Tækifæri.pdf | 955.95 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |