is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Lagadeild > Meistaraverkefni í lagadeild (MA/ML) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9836

Titill: 
  • Milliverðlagning : heimildir og takmarkanir með hliðsjón af alþjóðlegum skattarétti
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Með milliverðlagningu er átt við það verð sem tengdir aðilar koma sér saman um að gildi í viðskiptum þeirra á milli. Verðlagning milli tengdra aðila getur verið ákveðin með öðrum hætti en þeim sem almennt tíðkast í viðskiptum ótengdra aðila. Löggjöf um milliverðlagningu veitir skattyfirvöldum heimild til að endurákvarða það verð sem skuli gilda við ákvörðun skattstofna.
    Í meginmáli ritgerðarinnar er fyrst fjallað almennt um milliverðlagningu og vandamál tengd henni. Því næst er farið yfir íslenskar milliverðsreglur, skilyrði fyrir beitingu þeirra og hvernig dóma- og úrskurðaframkvæmd hefur verið. Að síðustu er fjallað um þá vinnu sem hefur farið fram á vettvangi OECD til að draga úr vandamálum tengdum milliverðlagningu og hvaða áhrif Evrópuréttur hefur á slíka löggjöf.
    Af íslenskri framkvæmd má sjá að skattyfirvöld virðast skorta nánari leiðbeiningar um hvernig skuli beita ákvæðum um milliverðlagningu. Þar gæti komið til greina að lögfesta leiðbeiningar OECD eins og mörg önnur ríki hafa gert. Þegar litið er til framkvæmdar á vettvangi Evrópubandalagsins sést að takmörkunum á fjórfrelsinu eru settar mjög þröngar skorður og rík krafa gerð um samvinnu ríkja og upplýsingaskipti þeirra á milli

Samþykkt: 
  • 3.8.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9836


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA_Sylvia_1306742919.pdf927.73 kBLokaðurHeildartextiPDF