Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/984
Umfjöllunarefni þessa lokaritgerðar er agi og uppeldi barna. Skoðaðar eru ýmsar
uppeldisaðferðir ásamt kenningum er lúta að uppeldi og agastjórnun.
Tilgangurinn er að dýpka skilning okkar á aga og agaaðferðum og finna kenningar
og/eða uppeldisaðferðir er geta að okkar mati fallið undir skilgreininguna
skynsamlegur agi.
Athyglinni er beint að ýmsum uppeldisaðferðum en þó mest að kenningum um
siðferði og ræktun persónudyggða, lífsleiknikennslu í skóla og kenningum u
heimspekikennslu barna. Fjallað verður um ýmislegt í kenningum Daniels Goleman
sem snýr að tilfinningagreind. Við veltum því fyrir okkur hvernig foreldrar og
kennarar geti í sameiningu stuðlað að bættum aga og fjöllum um mikilvægi gó
fyrirmynda.
Umfjöllunin leiddi í ljós að með því að rækta með börnum og kenna þeim a
tileinka sér dyggðir í orði og verki eins og siðfræðin og lífsleiknikennslan mæla fy
um, að efla með þeim gagnrýna og sjálfstæða hugsun með aðferðu
barnaheimspekinnar og að lokum kennsla í tilfinningahæfni er það sem við teljum a
stuðli að skynsamlegum aga.
Eftir að hafa rýnt í kenningar og skoðað uppeldisaðferðir
höfum við sannfærs
um gildi þess að innræta börnum siðferðisgildi, dyggðir og gagnrýna sjálfsta
hugsun. Við teljum það vera höfuðatriði í uppeldi barna og leiða til skynsamlegs aga
og að það sé til hagsbóta fyrir allt þjóðfélagið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
hinnskynsamlegi.pdf | 407.26 kB | Takmarkaður | Hinn skynsamlegi agi - heild | ||
hinnskynsamlegi_e.pdf | 22.26 kB | Opinn | Hinn skynsamlegi agi - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
hinnskynsamlegi_h.pdf | 36.48 kB | Opinn | Hinn skynsamlegi agi - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
hinnskynsamlegi_u.pdf | 24.69 kB | Opinn | Hinn skynsamlegi agi - útdráttur | Skoða/Opna |