is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/985

Titill: 
  • Myndlistarkennsla í grunnskólum : fagmiðuð myndlistarkennsla og samþætting
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi ritgerð er ætlað að styðja við hugmyndahandbókina 21 VERKEFNI Í
    MYNDLIST, sem ætluð er grunnskólakennurum.
    Ritgerðin fjallar um gildi listar í uppeldi barna; hvernig listuppeldi hefur áhrif á
    viðhorf barna gagnvart listinni og hvernig þau læra meðvitað að skapa list, njóta hennar
    og lesa í list og menningu sem eru þættir í daglegu lífi þeirra. Með því að örva
    sköpunarkraft og ímyndunarafl barna með hugrænum óhlutlægum kennsluaðferðum
    læra þau að tjá sig, mynda sér skoðanir, færa fyrir þeim rök og þekkja tilfinningar sínar.
    Ein leið að þessu marki er fagmiðuð myndlistarkennsla, FMMK. Hugmyndafræði
    stefnir að skipulögðu og öguðu listnámi sem hluta af almennu námi nemenda, hvaða
    hæfileikum sem þeir eru gæddir. Aðalnámskrá grunnskóla tekur mið af þessari
    hugmyndafræði þar sem hún leggur áherslu á fjórskiptinguna sem FMMK byggist á, þ.e.
    listasögu, listgagnrýni, myndgerð og fagurfræði og svo eftirfylgni markmiða með
    námsmati.
    Fjórskiptinguna er ekki aðeins hægt að nota í myndlist, heldur flestum
    námsgreinum og er þá auðvelt að samþætta myndlistina við aðrar greinar vegna þess hve
    skipulögð og markviss hún er. Myndlist kemur fyrir í flestum námsgreinum í einhverju
    formi, verkefni flestra námsgreina er hægt að útfæra á myndrænan hátt eða njóta aðstoðar
    myndlistarinnar til þess. Með þessu móti er hægt er að nálgast viðfangsefnin á breiðari
    grunni og gefa nemendum nýja sýn á námsgreinarnar sem unnið er með.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/985


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
myndlistark.pdf1.94 MBTakmarkaðurMyndlistarkennsla í grunnskólum - heildPDF
myndlistark-e.pdf8.32 kBOpinnMyndlistarkennsla í grunnskólum - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
myndlistark-h.pdf11.08 kBOpinnMyndlistarkennsla í grunnskólum - heimildaskráPDFSkoða/Opna
myndlistark-u.pdf12.26 kBOpinnMyndlistarkennsla í grunnskólum - útdrátturPDFSkoða/Opna