is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/989

Titill: 
  • Menning í nútímasamfélagi : fjölmenningarleg viðhorf og mannskilningur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Menning er máttugt afl sem hefur bæði mótandi og gagnvirk áhrif á tilveru sérhvers einstaklings allt frá fæðingu. Hún er hvorki einskorðuð við uppruna eða rætur einstaklings, né kynþátt eða þjóðerni. Aftur á móti er hún hluti af daglegu lífi hvers manns og hefur til dæmis áhrif á það hvað einstaklingur kýs að borða, hverju hann klæðist, hvernig hann hagar sér og hvaða augum hann lítur tilveruna. Auk þess sem menning hefur mikil áhrif á sjálfsmynd hvers og eins og viðmót annarra í garð einstaklings.
    Samfélög manna móta menningu sína hvert á sinn hátt, sumir eiginleikar hennar eru sammannlegir en aðrir greina hópa fólks í sundur. Eitt er þó víst að í samfélögum nútímans þurfa aldagamlar rætur samfélaga manna og menning þeirra að finna samhljóm. Til að það geti gerst þarf mannskilningur og virðing fyrir margbreytilegum skoðunum og lífsýn ólíkra menningarhópa að vera til grundavallar.
    Áhrif uppeldis-og menntastofnana á samfélagið eru mikil og því er nauðsynlegt að nám, kennsla og viðhorf þeirra er við skólana starfa einkennist af víðsýni og sé í takt við nýja tíma. Tíma sem einkennast af menningarlegum fjölbreytileika

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/989


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
menning.pdf362.24 kBLokaðurMenning í nútímasamfélagi - heildPDF
menning-e.pdf90.37 kBOpinnMenning í nútímasamfélagi - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
menning-u.pdf91.7 kBOpinnMenning í nútímasamfélagi - útdrátturPDFSkoða/Opna