Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9985
Ritgerðin fjallar um aðlögun tökusagna með sérstaka áherslu á íslensku og viðskeytið -era. Ritgerðinni er ætlað að veita fræðileg yfirlit yfir aðferðir við aðlögun tökusagna og notkun og þróun viðskeyta, þá sérstaklega -era.
Í byrjun er farið yfir aðlögun orða af öðrum orðflokkum og síðan fjallað um aðferðir við aðlögun almennt. Þá er sjónum beint að íslensku og fjallað um hvaða beygingarflokk tökusagnir fara í og hvaða viðskeyti eru notuð við aðlögunina.
Sérstök áhersla er lögð á að skoða viðskeytið -era, uppruna þess og þróun í málinu ásamt vangaveltum um val á milli þess og viðskeytisins -a sem alla jafna er algengara með tökusögnum. Að lokum er gerður stuttur samanburður á því hvernig enska, danska og hollenska fara með tökusagnir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-UnnurEva.pdf | 773.48 kB | Lokaður | Heildartexti |