Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/32323
Oft getur reynst erfitt að meta ástand á þaki sem er farið að skemmast vegna raka með sjónrænni skoðun án þess að opna þakið. Orsök rakaskemmda í þversniði þaksins getur verið af margvíslegum toga; rakaþétting vegna ófullnægjandi loftunar, rof í rakavarnarlagi sem leiðir til of mikils álags á loftrás, uppsafnaður byggingarraki í byggingarefni.
Farið verður í gegnum þversnið á léttu timburþaki með þunnum loftrásum og hvert efnislag fyrir sig útskýrt. Skoðað verður hvaða hlutverki hvert efnislag gegnir og einnig hvað ber að hafa í huga, bæði í hönnun og framkvæmd. Útreikningar verða framkvæmdir til að meta getu loftrásar í þaki vegna rakaíbætingu frá inniverum vegna rofs á rakavarnarlagi við breytilegar aðstæður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni_skemman.pdf | 50.34 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |