Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/34132
Grænmetisfæði verður sífellt vinsælla og er ein ástæðan oft sú að einstaklingar vilja lifa heilbrigðara lífi. Fleira íþróttafólk virðist einnig tileinka sér grænmetisfæði í von um betri árangur og hraðari endurheimt í sinni íþrótt.
Tilgangur ritgerðarinnar er að kanna hvað íþróttafólk í þolgreinum þarf helst að hafa í huga þegar það setur upp mataræði byggt á grænmetisfæði. Fjallað er um hvaða orku- og næringarefnum þarf að veita sérstaka athygli til að ná fullnægjandi magni fyrir þolíþróttafólk. Dæmi eru sett fram um matvæli úr plönturíkinu sem eru rík af þessum orku- og næringarefnum og einnig gert grein fyrir ráðlögðum dagskammti þessara efna fyrir þolíþróttafólk. Niðursöður ritgerðarinnar sýna að með góðu skipulagi getur grænmetisfæði fullnægt orku- og næringaþörf þolíþróttafólks.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Erla lokaverkefni 2019-skila1.pdf | 285.28 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemman_yfirlysing.pdf | 161.22 kB | Lokaður | Yfirlýsing |