is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16138

Titill: 
  • First North Iceland. Þekking og áhugi íslenskra fyrirtækja á markaðnum
  • Titill er á ensku First North Iceland. Icelandic companies knowledge and interest on the market
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Árið 2005 var lögum um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða breytt sem gerði skipulegum verðbréfamarkaði eða fjármálafyrirtæki mögulegt að reka markaðstorg fjármálagerninga. Við gildistöku laga um verðbréfaviðskipti árið 2007 var MIFID tilskipunin innleidd frá Evrópusambandinu þar sem rekstur skipulegs verðbréfamarkaðar og markaðstorgs fjármálagerninga var aðskilinn. Í IV. kafla laganna er fjallað um markaðstorg fjármálagerninga en aðilar sem fengið hafa leyfi til að starfrækja kauphöll eða fjármálafyrirtæki geta sótt um að reka markaðstorg fjármálagerninga.
    Kauphöll Íslands fór árið 2005 að huga að stofnun markaðstorgs fjármálagerninga. Markaðurinn var til að byrja með rekinn undir heitinu iSEC en við sameiningu Kauphallar Íslands og OMX kauphallanna varð markaðurinn hluti af First North Nordic markaðstorgum OMX. Hlutabréf Hampiðjunnar, HB Granda, Century Aluminum og Sláturfélags Suðurlands eru skráð á First North Iceland
    Um First North Iceland gilda ákveðnir kaflar verðbréfaviðskiptalaganna ásamt samnorrænum reglum um First North Nordic. Samkvæmt reglunum ber fyrirtækjum á First North Iceland skylda til að gera samning við viðurkenndan ráðgjafa (e. Certified Adviser) sem sinnir skráningu og upplýsingaskyldu. Gerð er minni krafa til fyrirtækja á First North Iceland en fyrirtækja á Aðalmarkaði varðandi rekstrarsögu og markaðsvirði. Engin flöggunarskylda eða tilboðsskylda gildir um félög sem skráð eru með hlutabréf sín á First North Iceland og ekki þarf að gera reikningsskil samkvæmt alþjóðlegu reikningsskilastöðlunum IFRS.
    Fyrirtæki og fjárfestar á Íslandi hafa sýnt First North Iceland takmarkaðan áhuga en ákveðnir þættir í íslensku umhverfi eru þar mögulegir orsakavaldar. Samkvæmt lögum um lífeyrissjóði er fjárfesting í hlutabréfum fyrirtækja á First North Iceland flokkuð sem óskráð eign, skattaumhverfið á Íslandi er markaðnum ekki hagstætt og ekki hefur verið ýtt undir seljanleika bréfa á markaðnum með samningum um viðskiptavakt.
    Til að komast að raun um þekkingu og áhuga íslenskra fyrirtækja á First North Iceland var send út netkönnun á forsvarsmenn fyrirtækja sem tilheyra þrjú hundruð stærstu fyrirtækjum landsins. Niðurstaða könnunarinnar leiddi í ljós að lítil þekking er til staðar á First North Iceland og lítill áhugi er á meðal fyrirtækjanna að skrá hlutabréf sín á markaðinn.

Samþykkt: 
  • 9.8.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16138


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Þuríður_Guðmundsdóttir_BS.pdf913.27 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna