Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3866
Hér er fjallað um sveitasöguþríleik Jóns Kalmans Stefánssonar, sem samanstendur af bókunum Skurðir í rigningu (1996), Sumarið bakvið Brekkuna (1998) og Birtan á fjöllunum (1999). Farið yfir sögu íslensku sveitasagnahefðarinnar og þríleikurinn settur í samhengi við hana. Þá er fjallað um margvísleg textatengsl þríleiksins við rithöfundana Halldór Laxness og Þórberg Þórðarson og rætt hvernig greina megi ákveðna mynd af bókmenntasögunni í þeim tengslum. Að lokum er frásagnarháttur þríleiksins greindur út frá frásagnarfræði og kenningum um sjálfsögur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
2009_fixed.pdf | 789.67 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |