Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/34076
Markmið þessa verkefnis er að skoða hvernig það hjálpar nemendum á unglingastigi að kunna margföldunartöfluna og hvar þeir nýta hana. Í upphafi er fjallað um nám í margföldunartöflu og þá kosti sem færni í henni hefur. Síðan eru dæmi í íslenskum kennslubókum greind til að komast að því hvar nemendur geta nýtt sér margföldunartöfluna. Rannsóknarspurning í verkefninu er: Hvernig hjálpar kunnátta í margföldunartöflunni nemendum á unglingastigi að leysa verkefnin sem þeir fást við. Niðurstaða greiningar gefur það til kynna að nauðsynlegt sé að nemendur kunni margfeldi töflunnar og geti nýtt sér þau í námi á unglingastigi. Það eykur skilning og sparar tíma. Kennarar ættu því að leggja áherslu á það að rifja margföldunartöfluna upp með nemendum sínum þegar þeir hefja nám á unglingastigi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni B.E.d. - Er margföldunartaflan málið.pdf | 2.86 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing - Oddný Helga Einarsdóttir.pdf | 176.89 kB | Lokaður | Yfirlýsing |