is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25286

Titill: 
  • Áhrif vindmylla í Búrfellslundi á ferðamenn með tilliti til fegurðar landslags
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Vindmyllur eru nýr orkukostur hér á landi. Landsvirkjun hefur nú til skoðunar að reisa allt að 63 vindmyllur með allt að 200 MW orkuvinnslu norðaustan við Búrfell í Þjórsárdal í svokölluðum Búrfellslundi. Hluti að vinnu við mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar var rannsókn á viðhorfum ferðamanna til framkvæmdarinnar. Rannsóknin var unnin árin 2014-2015 fyrir Landsvirkjun og er hún hluti meistaraverkefnis í ferðamálafræði við Háskóla Íslands sem kynnt er í þessari ritgerð. Markmið þessarar ritgerðar er að fjalla um hvernig ferðamenn skynja landslag og fegurð þess. Einnig að kanna áhrif vindmylla á upplifun ferðamanna og hvernig ljósmyndir hafa verið notaðar sem rannsóknartæki til að meta viðhorf ferðamanna til landslags. Í rannsókninni sem fjallað er um í ritgerðinni voru ferðamenn meðal annars beðnir að meta fegurð landslags á ljósmyndum. Þykir ferðamönnum landslag á ljósmyndum sem innfela ekki orkumannvirki fallegra en það landslag þar sem orkumannvirki eru sýnileg. Niðurstaða ritgerðarinnar er að þekking á viðhorfum ferðamanna til fegurðar landslags sé afar mikilvæg í skipulagsvinnu og umhverfisstjórnun svæða og ljósmyndir gagnist vel til að afla þeirrar þekkingar. Sterkar vísbendingar eru um að vindmyllur sem skyggja á fallegt landslag geti leit til þess að upplifun ferðamanna skerðist og aðdráttarafl svæða minnki.

Samþykkt: 
  • 21.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25286


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ahrif_Vindmylla_i_Burfellslundi_a_ferdamenn_mtt_fegurdar_landslags.pdf23.1 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing_Guðmundur.pdf417.67 kBLokaðurYfirlýsingPDF