is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/32761

Titill: 
  • „Aldrei skal ég þagna á því meðan ég tóri.“ Um Oddnýju Guðmundsdóttur skáldkonu frá Hóli á Langanesi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Oddný Gunnhildur Guðmundsdóttir frá Hóli á Langanesi (19081985) er rithöfundur sem ekki fer hátt í íslenskri bókmenntasögu. Þó sendi hún frá sér fimm skáldsögur á árunum 19431983. Hún samdi einnig beitta pistla, kvæði og smásögur auk þess sem hún fékkst við þýðingar. Mestan hluta ævi sinnar stundaði hún farkennslu í sveitum landsins og fór á milli landshluta á reiðhjóli langar dagleiðir. Hún var eldheitur sósíalisti og landskunn fyrir beitta pista í fjölmiðlum um íslenska tungu og menntamál. Fátt segir þó af þessari merku konu á spjöldum sögunnar.
    Oddný fór alltaf eigin leiðir, bæði í starfi, einkalífi og skáldskap. Hún var frjáls og sjálfstæð kona sem skar sig úr, hún átti hvergi fastan samastað og var alla ævi óþreytandi að bæta heiminn. Hún reis gegn hefðbundnu kynhlutverki, gekk í buxum þegar aðrar konur klæddust kjól, giftist aldrei og eignaðist ekki börn. Þá gekk hún menntaveg og ferðaðist víða, m.a. til Sovétríkjanna, og tróð sér fram á ritvöll þar sem karlar réðu ríkjum og settu bókmenntir kvenna skör lægra.
    Oddný hafði flókna skapgerð og var samsett úr ríkum andstæðum sem birtast í verkum hennar; annars vegar íhaldssemi og forneskju sem birtast vel í skáldsögum hennar en hins vegar framsýni og róttækni eins og sjá má í hugmyndum hennar í kennslu- og uppeldisfræði. Í þessari ritgerð er fjallað um hvort hún hafi verið frumkvöðull eða afturhald og hvernig hugsjónir hennar birtast í höfundarverkinu. Þá er sjónum beint að stöðu hennar í íslenskri bókmenntasögu þegar skáldverk kvenna voru hunsuð og hædd. Skoðað er hvort feðraveldi hafi ýtt Oddnýju út í horn eða hvort hún skapaði sína útlegð sjálf með því að rísa gegn valdhöfum á sviði menningarinnar, eins og franski félagsvísindamaðurinn Pierre Bourdieu skilgreinir það, með því að skrifa ádrepur og kaldhæðna gagnrýni í fjölmiðlum.

  • Útdráttur er á ensku

    Oddný Gunnhildur Guðmundsdóttir (19081985) was born in a farm in the northeast of Iceland, Hóll in Langanes. She is a novelist with a marginal status in Icelandic literature. In total she published five novels (19431979) and also wrote poems and short stories as well as translations. For the most part of her life she was a temporary teacher in the countryside and biked between vast parts of the country, 100-200 km daily. She had socialistic ideals and was known for her critical articles in the newspapers about the Icelandic language and education.
    Oddný always walked her own path, both in work, private life and in fiction. She was a free and independent woman sticking out from the crowd, she never had a house of her own and throughout her whole life she relentlessly tried to improve the world. She challenged the male territory of her time by wearing pants when no other woman did, she never married or had children, she was educated and travelled abroad, even to the USSR. Her criticism possibly explains how lonesome she appears and undeservedly forgotten among authors. Women who criticize are dangerous and pushed aside, especially in the last century when women were systematically silenced by the patriarchy.
    She had a difficult temper and was composed of rich contrasts which appear in her books; she valued the old farming community in times of radical changes and urbanization in Icelandic society, but in many aspects she was ahead of her contemporaries, for example regarding education. In this paper reasons for her eccentric and self-imposed exile in traditional society and contemporary litterature will be explored along with her sarcastic mutiny against agents of the cultural field as the french sociologist Pierre Bourdieu describes it.

Samþykkt: 
  • 8.5.2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/32761


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Steinunn Inga Óttarsdóttir.pdf1.23 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
YfirlysingSIO.jpg790.43 kBLokaðurYfirlýsingJPG
Ein gegn öllum klipp 06062019.mp3112.8 MBOpinnMPEG AudioSkoða/Opna