is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Tónlistardeild / Department of Music > Lokaritgerðir / Theses (BA, B.Mus.) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15515

Titill: 
  • Áhrif Paganinis á þróun fiðlutónlistar 19. aldar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Nicoló Paganini var fiðluleikari sem hafði mikil áhrif á þróun tónlistarsögunnar. Í þessari ritgerð verða aðallega skoðuð áhrif Paganinis á þróun fiðlutónlistar á 19. öld. Paganini var mjög vinsæll fiðluleikari og sló í gegn meðal almennings fyrir tilstilli gríðalegra tæknilegra hæfileika. Hljóðfæraleikur hans hljómaði nýr í eyrum áheyrenda á 19. öld. Fiðluleikarinn tileinkaði sér nýuppgötvaða tækni 19. aldarinnar og beitti hæfileikum sínum við að þróa þá tækni til fullkomnunar. Hann var aðallega þekktur fyrir mjög hröð staccato, ricochet-bogastrok og fjölbreytta notkun á flaututónum, tvígripum og vinstrihandar pizzicatoi. Tónverk Paganinis eru mikilvæg heimild um fiðluleikarann en þar má sjá allt sem einkenndi tækni hans og spilastíl. Kaprísurnar 24 urðu sérstaklega vinsælar, bæði meðal fiðluleikara og annarra tónskálda. Vinsældir kaprísanna gerðu Paganini að aðal áhrifavaldi tónskálda 19. aldarinnar. Virtúósísk áhrif Paganinis bárust víða með kaprísunum og lagði það grundvöllinn að áframhaldandi útvíkkun tækninnar. Með tónverkum sínum og vinsældum kom Paganini því af stað þróun á virtúósískri tónlist, bæði í heimi fiðlunnar og í tónlistarheiminum almennt.

Samþykkt: 
  • 5.6.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15515


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Áhrif Paganinis á þróun fiðlutónlistar 19. aldar.pdf272.18 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna