Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/31480
Þessi greinargerð og verkefnahefti sem henni fylgir er lokaverkefni í grunnskólakennarafræðum við Háskóla Íslands. Tilgangur verkefnisins var að búa til prjónauppskriftir sem myndu auka sjálfstæði, sköpun og vinusemi nemenda. Í greinargerðinni er fjallað í stuttu máli um sögu prjóns allt frá því á 8. öld e.Kr. og alveg þangað til prjónið kom til Íslands. Fjallað er um helstu prjónaaðferðir sem nýttar eru við verkefnin. Komið er inn á kennsluaðferðir í tengslum við verkefnin og verkefnavinnuna. Einnig er farið yfir uppbyggingu verkefnaheftisins og verkefnavalið. Verkefnaheftið inniheldur sex prjónauppskriftir sem settar eru upp í skrefum, á einfaldan og skilmerkilegan hátt. Áhersla er lögð á sköpunarþátt nemenda þar sem uppskriftirnar og sýnishornin eru unnin í hlutlausum lit og án munstra. Uppskriftirnar eru samdar af höfundi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerðin - loka loka.pdf | 567.23 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Uppskriftirnar - yfirfarið lokalestur.pdf | 1.05 MB | Opinn | Uppskriftahefti | Skoða/Opna | |
yfirlýsing.pdf | 39.74 kB | Lokaður | Yfirlýsing |