Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/10024
Félagafrelsi hefur notið stjórnarskrárverndar á Íslandi frá því að þjóðinni hlotnaðist
sín fyrsta stjórnarskrá, frá danska ríkinu árið 1874. Fégalafrelsi veitir aðilum rétt til að
stofna félög, í hvers konar löglegum tilgangi. Réttur stjórnvalda til að leysa upp félög
sem talin eru starfa í ólöglegum tilgangi er einnig varinn af stjórnarskránni, en sem
komið er hafa stjórnvöld ekki gripið til þeirra heimilda. Stofnun Íslandsdeildar Hells
Angels mótorhjólasamtakanna hefur vakið sterk viðbrögð í samfélaginu og settar hafa
verið fram kröfur um að samtökin skuli banna á Íslandi. Verður í þessari ritgerð farið
yfir áðurnefnda heimild stjórnvalda ásamt því að löggjöf, sem miðar að því að koma í
veg fyrir skipulagða glæpastarfsemi skoðuð. Í því sambandi verður einnig litið til
Danmerkur og Kanada, en í þeim löndum hefur starfsemi Hells Angels verið
umsvifamikil og stjórnvöld þar í landi verið ódeig í baráttuni við samtökin.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_ritgerð_elisa_soley.pdf | 412.39 kB | Lokaður | Heildartexti |