Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/10055
Rannsókn þessi miðar að því að varpa ljósi á hvernig leiðir frjálsra félagasamtaka í þróunaraðstoð og samfélagsábyrgð fyrirtækja á Íslandi liggja saman og hvernig fyrirtæki geta hugsanlega samræmt arðsemissjónarmið sín markmiðum um samfélagsábyrgð í gegnum þróunaraðstoð. Fyrst er umfang og eðli frjálsra félagasamtaka og sjóða í þróunarsamvinnu á Íslandi greint og metið þar sem ekki voru til fyrirliggjandi upplýsingar um slíkt. Farið er yfir sögu þróunarsamvinnu á Íslandi, núverandi staða skoðuð og hún borin saman við þær leiðir sem farnar eru í nágrannaríkjum okkar. Sá samanburður gefur til kynna að Íslendingar eru eftirbátar nágrannaríkjanna í þróunarsamvinnu. Aðkoma fyrirtækja í gegnum samfélagsábyrgð er mjög skammt á veg komin hérlendis og hefur einskorðast við peningagjafir. Samstarf einkageirans og frjálsra félagasamtaka í þróunarsamvinnu er hinsvegar stór hluti af þróunarstarfi Norðurlandanna. Farið er yfir hvaða leiðir hafa verið farnar þar og mögulegar leiðir Íslands til aukinnar þátttöku í þróunarsamvinnu skoðaðar. Komist er að þeirri niðurstöðu að fyritæki og frjáls félagasamtök í þróunaraðstoð geti raunverulega haft hag af samstarfi í þágu baráttunnar gegn fátækt og unnið sameiginlega að Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Slík er raunin í nágrannaríkjum okkar og engin ástæða til annars en að ætla að Ísland geti farið sömu leið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Betur ma ef duga skal_MA_ritgerd_Thorunn_Stefansdottir.pdf | 4.51 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |