en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/10093

Title: 
  • Title is in Icelandic Frelsi til að fjötra náttúruna. Greining á skáldsögunni Freedom út frá sjónarhorni vistrýni
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Í þessari ritgerð er skáldsagan Freedom eftir bandaríska rithöfundinn Jonathan Franzen greind frá sjónarhóli vistrýni en það er nýleg stefna í bókmenntagagnrýni. Í þess konar rýni er texti settur í samhengi við umhverfisfræði og til grundvallar eru því alls kyns vistfræðilegir textar. Greind eru helstu umhverfisvandamál sem birtast í frásögninni með tilliti til birtingarmynda þeirra, afstöðu verksins til vandamálanna og orsakavalda þeirra. Auk þess eru greindar þær lausnir við umhverfisvandamálum sem koma fram í textanum.
    Til grundvallar á greiningu textans liggja m.a. þrjár meginspurningar í náttúrusiðfræði þar sem notast er við skilgreiningar eftir Pál Skúlason. Út frá þeim er rýnt í það siðferði sem býr að baki aðgerðum mannanna sem stuðla að umhverfisvandamálum og einnig greint hvers konar siðferði er undirliggjandi í lausnum við þessum vandamálum. Auk þess er textinn greindur út frá skilgreiningum á mismunandi líkingamálum sem birtast oft og tíðum í umhverfismiðuðum texta.
    Þessi umhverfisfræðilega greining á skáldsögunni ber síðan uppi umfjöllun um þá gagnrýni sem birtist í verki Franzen á notkun frelsishugtaksins í bandarískum samtíma. Skoðað er hvernig hugmyndir Bandaríkjamanna um frelsi hafa áhrif á umhverfismál þar í landi. Greining á umhverfismiðuðum þráðum verksins er sem sé notuð til þess að varpa ljósi á notkun frelsishugtaksins og jafnframt þýðingu þess fyrir umhverfismál.

Accepted: 
  • Sep 19, 2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10093


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Magnús Örn Sigurðsson_BA-NYTT.pdf804,03 kBOpenHeildartextiPDFView/Open