Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/10103
Ritgerð þessi fjallar um starfsánægju og líðan framlínustarfsmanna í Landsbankanum og er unnin með megindlegri rannsóknaraðferð. Rannsóknin byggist á spurningakönnun sem lögð var fyrir 327 framlínustarfsmenn í 20 útibúum Landsbankans. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á starfsánægju og líðan framlínustarfsmanna og kanna hvort upplifun af efnahagshruninu í starfi, hefði áhrif á líðan þeirra.
Spurningakönnunin var útbúin með hliðsjón af Norræna spurningalistanum um sálfélagslega þætti í vinnunni, spurningum úr könnunum á líðan, vinnuumhverfi og heilsu starfsfólks í bönkum og sparisjóðum og spurningum sem rannsakandi samdi sjálfur. Könnunin var send út á rafrænu formi og niðurstöður svo færðar inn í SPSS tölfræðiforritið til úrvinnslu.
Helstu niðurstöður sýna að almennt líður framlínustarfsmönnum Landsbankans vel í vinnunni og þeir eru ánægðir í starfi sínu. Þeir bera mikið traust til næsta yfirmanns og starfsandi innan útibúanna er góður. Meðalaldur starfsmanna er 45,2 ár og meðalstarfsaldur þeirra 16,9 ár. Konur eru í miklum meirihluta starfsmanna, eða 75% og eru fleiri en karlar í öllum starfsheitum innan útibúanna. Í ljós kom að þeim starfsmönnum sem líður einna verst eru konur á miðjum aldri og með meðallangan starfsaldur, starfa sem þjónustufulltrúar, eru með framhaldsskólamenntun og starfa á höfuðborgarsvæðinu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Meistararitgerð, Martha Kristín Pálmadóttir.pdf | 1,39 MB | Lokaður | Heildartexti |