en English is Íslenska

Thesis (Master's)

Reykjavík University > Samfélagssvið / School of Social Sciences > MPH Kennslufræði og lýðheilsudeild (-2013) >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/10103

Title: 
  • Title is in Icelandic Ekki eru allir bankamenn bankamenn : um starfsánægju framlínustarfsmanna í Landsbankanum
Degree: 
  • Master's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Ritgerð þessi fjallar um starfsánægju og líðan framlínustarfsmanna í Landsbankanum og er unnin með megindlegri rannsóknaraðferð. Rannsóknin byggist á spurningakönnun sem lögð var fyrir 327 framlínustarfsmenn í 20 útibúum Landsbankans. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á starfsánægju og líðan framlínustarfsmanna og kanna hvort upplifun af efnahagshruninu í starfi, hefði áhrif á líðan þeirra.
    Spurningakönnunin var útbúin með hliðsjón af Norræna spurningalistanum um sálfélagslega þætti í vinnunni, spurningum úr könnunum á líðan, vinnuumhverfi og heilsu starfsfólks í bönkum og sparisjóðum og spurningum sem rannsakandi samdi sjálfur. Könnunin var send út á rafrænu formi og niðurstöður svo færðar inn í SPSS tölfræðiforritið til úrvinnslu.
    Helstu niðurstöður sýna að almennt líður framlínustarfsmönnum Landsbankans vel í vinnunni og þeir eru ánægðir í starfi sínu. Þeir bera mikið traust til næsta yfirmanns og starfsandi innan útibúanna er góður. Meðalaldur starfsmanna er 45,2 ár og meðalstarfsaldur þeirra 16,9 ár. Konur eru í miklum meirihluta starfsmanna, eða 75% og eru fleiri en karlar í öllum starfsheitum innan útibúanna. Í ljós kom að þeim starfsmönnum sem líður einna verst eru konur á miðjum aldri og með meðallangan starfsaldur, starfa sem þjónustufulltrúar, eru með framhaldsskólamenntun og starfa á höfuðborgarsvæðinu.

Accepted: 
  • Sep 19, 2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10103


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Meistararitgerð, Martha Kristín Pálmadóttir.pdf1.39 MBLockedComplete TextPDF