Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/10236
Þessu riti er ætlað að auðvelda vinnu að innnleiðingu þekkingardrifins samfélags á Fljótsdalshéraði. Þekkingardrifið samfélag einkennist af því að stöðugt nýsköpunarstarf á sér stað í stóru og smáu á vinnustöðum, fyrirtækjum og stofnunum. Helstu áskoranir þekkingardrifins samfélags er lýst og helstu hugtök sem snerta nýsköpunarstarfsemi eru skilgreind og lögð áhersla á að kynna stjórnunaraðferðir sem virkja einstaklinga í samstarfi um umbætur og leit að hugmyndum að nýjum vörum og þjónustu sem efla atvinnulíf og auka lífsgæði. Stjórnunaraðferðir þessar eru nefndar „nýsköpun með virkri þátttöku“ og er þeim lýst í stuttu máli í tveimur síðustu köflum ritsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Skref.pdf | 614,69 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |