Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/10306
Í þessari rannsókn er sjónum beint að eigin kennsluháttum í kennslu nemanda með einhverfu. Rannsókninn spannaði tímabilið frá hausts 2008 til vors 2011. Markmið rannsóknarinnar var að skoða sjálfan mig í starfi sem kennari/sérkennslustjóri í skipulagðri kennslu innan TEACCH þjónustulíkansins, sem er kennsluaðferð fyrir börn með einhverfu. Ég var að velta fyrir mér hvað ég var að kljást við og hvort ég hefði getið á komið á annan hátt að kennslunni þegar ég var í starfi. Það er skoður hver þáttur fyrir sig í aðkomu að kennslu og kennsluleiðum, ígrunduð framför hjá nemanda og hvort það hefði verið hægt að nálgast viðfangsefnið á annan hátt að hverju leiti.
Í fræðilegu umfjöllununni er farið í þætti eins og hvað einhverfa sé, birtingarmynd hennar, orsök og greining, sagt er frá TEACCH þjónustulíkaninu og starfsháttum þess. Fjallað er um hvað felst í starfendarannsókn og hennar aðferðum lýst.
Gagnaöflun fór fram með dagbókaskrifum, skýrslum, fundagerðum og viðtali við stuðningsaðila. Gögnin voru rýnd og skipt upp í þemu eftir því hvað verið væri að skoða í hvert sinn. Rannsóknarvinur var mér til halds og traust við úrvinnslu rannsóknarinnar og hann hitti ég reglulega. Umræður um framgang mála ritsmíðarinnar og úrvinnslu voru rædd á hispurslausan hátt okkar á milli. Eftir hvert þema sem var skoðað, er ígrundunar kafli um vangaveltur og fjallað var um hvernig tókst til við kennslu út frá minni upplifun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
mastersritgerð_María Sif Sævardóttir.pdf | 2.07 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |