is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Auðlindadeild (2005-2016) > B.S. verkefni - Auðlindadeild >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12115

Titill: 
  • Athugun á úrvalsstyrkleika og erfðaframförum í einstökum eiginleikum í íslenskri hrossarækt
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í ræktunarmarkmiði íslenskra hrossa er lögð áhersla á ræktun sterkbyggðra, viljugra og geðgóðra alhliðahrossa sem henta bæði börnum og fullorðnum jafnt í keppni sem frístundaiðju. Úrvalsmarkið er nánar skilgreint sem eiginleikar dómstigans sem dæmdir eru á kynbótasýningum. Í dag eru metin 17 atriði; átta atriði tilheyra sköpulagi (höfuð; háls, herðar og bógar; bak og lend; samræmi; fótagerð; réttleiki; hófar og prúðleiki) og níu tilheyra hæfileikum (hægt tölt; tölt; brokk; skeið; hægt stökk; stökk; vilji og geðslag; fegurð í reið og fet). Hver eiginleiki hefur sinn vægistuðul sem er eins konar hagfræðilegur mælikvarði á verðmæti eða mikilvægi hans. Við úrval íslenskra kynbótahrossa er notast við kynbótaeinkunn sem byggir á kynbótadómum og uppröðun hrossa miðast við kynbótagildi heildareinkunnar sköpulags og hæfileika. BLUP (e. best linear unbiased prediction) aðferðin er notuð við útreikninga á kynbótamatinu og niðurstöður útreikninga eru aðgengilegar almenningi inn á vefsíðunni www.worldfengur.com.
    Úrvalsstig íslenskra stóðhesta eru þrjú: fyrsta stigið er ákvörðunin um hvort ungfoli verði geltur eða ekki, annað stigið er eftir einstaklingsdóm stóðhestsins og þriðja er eftir einstaklingsdóm 15-30 afkvæma. Hryssur eru valdar eftir ætterni og/eða einstaklingsdóm. Úrval er forsenda kynbótastarfs og erfðaframfara og úrvalsstyrkleikinn er í raun beinn mælikvarði á virkni kynbótastarfsins. Markmið
    verkefnisins var að kanna úrvalsstyrkleika og erfðaframfarir á árunum 1990-2010 í þeim eiginleikum íslenska hestsins sem skilgreina ræktunarmarkmiðið og meta hversu vel ræktendur fylgja í raun hinu opinbera ræktunarmarkmiði. Ættliðabil kynbótahrossa á tímabilinu var einnig kannað. Þessi atriði hafa áður verið könnuð en lítið hefur þó verið birt opinberlega um niðurstöður. Við úrvinnslu rannsóknarinnar var notað kynbótamat hrossa fæddum á Íslandi á tímabilinu 1990-2010, alls 237251 einstaklingar. Forrit frá Þorvaldi Árnasyni voru notuð til útreikninga á erfðaframförum, úrvalsstyrkleika og ættliðabili.
    Ættliðabil stóðhesta í íslenska hrossastofninum er að meðaltali 7,6 ár og hryssna 12,4 ár. Ættliðabil hryssna hefur lengst á tímabilinu en ættliðabil stóðhesta hefur styst. Úrvalsstyrkleiki heildareinkunnar sköpulags og hæfileika hefur aukist um 5% í feðraliðum á tímabilinu og tvöfaldast í mæðraliðum. Úrvalsstyrkleikinn er þó margfalt meiri hjá stóðhestum en hjá hryssum í öllum metnum eiginleikum nema feti (úrvalsstyrkleiki heildareinkunnar er 12,5 stig að meðaltali hjá stóðhestum en 2,7 stig
    hjá hryssum). Staðlaður úrvalsstyrkleiki sýnir fram á afturför í hlutfalli valinna foreldra frá því um aldamótin. Hlutfall valinna stóðhesta fyrir heildareinkunn hefur hækkað úr 5% í 20% á síðustu 10 árum og hlutfall valinna hryssna fyrir sama eiginleika hefur hækkað úr 65% í 80% á sama tíma. Ljóst er á niðurstöðum að í flestum tilvikum hefur vægi eiginleikanna mikið um það að segja hversu stíft er valið fyrir þeim (valið stífast fyrir hálsi, herðum og bógum; samræmi; tölti; fegurð í reið; vilja og geðslagi) og því má álykta að ræktendur séu í grunninn að fylgja ræktunarmarkmiðinu.
    Árlegar erfðaframfarir eru í samræmi við úrvalsstyrkleika hvers eiginleika, þ.e. mestar erfðaframfarir eru þar sem úrvalsstyrkleikinn er mestur. Erfðaframfarirnar í heildareinkunn sköpulags og hæfileika eru um 1,1 staðalfrávik staðlaðrar kynbótaeinkunnar síðustu tvo áratugina. Erfðaframfarirnar eru að mestu leyti tilkomnar vegna úrvals stóðhesta. Brýna þarf fyrir ræktendum að framkvæma stífara úrval gagnvart hryssum. Vaxandi hlutfall sýndra hryssna gefur tilefni til stífara úrvals sem myndi leiða til aukinna erfðaframfara. Afturför í valhlutfalli gefur einnig rými til stífara úrvals, sérstaklega hvað varðar stóðhestana. Við úrval þarf þó alltaf að taka mið af erfðabreytileikanum og passa að hann tapist ekki úr stofninum og huga að stærð virkrar stofnstærðar. Nauðsynlegt er að viðhalda skynsamlegum fjölda kynbótagripa. Einnig þarf að fylgjast með þróun ættliðabils stóðhesta með tilliti til öryggi úrvalsins og fræða ræktendur um mikilvægi þess að skipta eldri ræktunarhryssum fyrr út fyrir yngri hryssur með hærra kynbótamat til að stytta ættliðabil hryssna og auka erfðaframfarir.

Athugasemdir: 
  • Athugasemdir er á óskilgreindu tungumáli Útskrift frá:
    Háskólanum á Hólum - Hestafræðideild
    Landbúnaðarháskóla Íslands - Auðlindadeild
Samþykkt: 
  • 12.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12115


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_Heiðrún Sigurdardottir.pdf535.63 kBOpinnPDFSkoða/Opna