Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10644
Á rannsóknarstofu fyrir ómönnuð farartæki voru
nýverið reist lághraðavindgöng sem nýta á til
rannsókna við streymisaðstæður smárra flygilda. Eitt
af markmiðum rannsóknarstofunnar er hönnun og smíði á sjálfráðum vélfugli með mikla hreyfigetu sem að nýtir sér vængjaslátt til flugs. Verksvið þessa lokaverkefnis skiptist í eftirfarandi hluta; (1) að þróa og framkvæma aðferðir til að gera aðstöðuna starfhæfa til áðurnefndra tilrauna, (2) framkvæma slíkar tilraunir og bera niðurstöður saman við tölvulíkan, (3) setja fram reiknilíkan byggt á grunnhugtökum í loftaflsfræði sem hagnýtir niðurstöður tilraunanna til ákvörðunar helstu stærða slíks flygildis. Streymi í vindgöngum var kortlagt með mælingum og framkvæmdar voru endurbætur til að
bæta gæði streymisins. Umtalsverður árangur náðist og var raunkostnaður aðeins 23% af tilboði sem áður hafði fengist í verkið. Tilraunir voru framkvæmdar á kyrrstæðum og blakandi vængjum sem voru sérsmíðaðir í tölvustýrðum frauðplastskera. Út frá niðurstöðum þeirra var sett fram hönnunartilfelli fyrir vélfugl sem byggist á reiknilíkaninu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Kristjan og Fannar_læst.pdf | 7.31 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |