Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/10754
Mikil þörf er fyrir hendi að upplýsingar um húsnæðismarkaðinn séu aðgengilegar. Skortur hefur verið á að veita fólki fjárhagslegar leiðbeiningar um hvort eigi að kaupa húsnæði eða leigja það. Markmið ritgerðarinnar er að fara yfir fjárhagslega áhrifaþætti á kaup, eign og sölu húsnæðisins og bera þá saman við fjárhagslega áhrifaþætti leigu. Stefnt er að smíði reiknilíkans í Excel töflureikni þar sem notendur geta skráð mismunandi forsendur og metið stöðu sína.
Það er betra fyrir alla fjárhagslega séð að kaupa en leigja. Aðalástæðan fyrir því er hækkun á raunvirði húsnæðis yfir eignartímabilið. Fólk sem kaupir stærri eignir fá líka meiri ávöxtun vegna virðisaukningar á húsnæðinu. Ávöxtun við kaup á húsnæði er ekki skattlögð líkt og gert er við ávöxtun á handbæru fé. Verðbólguhækkanir geta aukið þennan mismun verulega, en ef engin verðbólga væri þá eykst hagræðingin á því að leigja húsnæði. Eftir því sem tekjur hækka því betra er það fyrir fólk að kaupa sér húsnæði, þar sem það minnkar réttindi þeirra til húsaleigubóta.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Birna Guðný Björnsdóttir - Ritgerd 2011.pdf | 490.92 kB | Open | Complete Text | View/Open |