Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1081
Þetta verkefni fjallar um stöðu og þróun hvalaskoðunar á Íslandi og erlendis og stöðu Norður-Siglingar ehf. í íslenskri ferðaþjónustu. Einnig er sett fram viðskiptaáætlun fyrirtækisins.
Í fyrsta hluta verkefnisins er fjallað um hvalaskoðun innan ferðaþjónustunnar og stöðu Húsavíkur í því sambandi. Rædd eru umhverfismál í tengslum við ferðaþjónustu og hvaða straumar og stefnur eru ráðandi hvað það snertir. Velt er upp hugmyndum um sjálfbæra hvalaskoðun og tekið dæmi um vel heppnaða uppbyggingu á hvalaskoðunarstað á Nýja-Sjálandi.
Í öðrum hluta er viðskiptaáætlun Norður-Siglingar sett fram þar sem meðala annars eru sýnd yfirlit yfir ársreikninga fyrirtækisins frá árunum 1999 til 2001 og þróun þeirra lýst. Í því framhaldi er sett fram þriggja ára áætlun frá 2004 til 2006.
Í þriðja og síðasta hluta verkefnisins eru umræður og tillögur og niðurstöður. Þar kemur fram að Ísland er komið á kortið sem vinsæll hvalaskoðunarstaður og hvalaskoðun hefur haft jákvæð áhrif, bæði efnahagsleg og félagsleg, á Húsavík og umhverfi sem er fjölsóttasti hvalaskoðunarstaður á Íslandi. Norður-Sigling er í sterkri stöðu sem stærsta hvalaskoðunarfyrirtækið á landinu og með auknum áherslum á umhverfisvæna- og menningartengda ferðaþjónustu á Norður-Sigling alla möguleika á að standast harðnandi samkeppni og eflast sem framsækið ferðaþjónustufyrirtæki.
Lykilorð:
Viðskiptaáætlun
Hvalaskoðun
Vistvæn ferðaþjónusta
Sjálfbær ferðaþjónusta
Afþreying
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
nordursigl.pdf | 717.28 kB | Lokaður | Norður-Sigling - heild | ||
nordursigl_u.pdf | 128.78 kB | Opinn | Norður-Sigling - útdráttur | Skoða/Opna | |
nordursigl_h.pdf | 131.78 kB | Opinn | Norður-Sigling - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
nordursigl_e.pdf | 153.67 kB | Opinn | Norður-Sigling - efnisyfirlit | Skoða/Opna |