Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1082
Viðfangsefni þessa verkefnis var að greina gæðaferla á verkfræði- og framkvæmdasviði Landsvirkjunar. Greiningin fólst í því að koma að raunverulegri vinnu ritunarhóps við smíði og endurbætur á gæðaferlum tengdum Verkfræði- og framkvæmdasviði. Sú vinna sem fram fór á þeim fundum sem haldnir voru verður borin saman við þær fræðilegu kenningar sem settar hafa verið fram. Tilgangurinn er að átta sig á þeirri stöðu og stefnu sem íslensk fyrirtæki eru að vinna eftir í gæðamálum.
Af niðurstöðum rannsóknarinnar má álykta að fyrirtæki sem standa að verklegum framkvæmdum standa frammi fyrir mikilli gæðavinnu. Sú vinna miðar að því að koma á fót vottuðum gæðakerfum. Mikill áhugi er hjá fyrirtækjum að fara að vinna í gæðamálum, og hafa til að mynda samtök Iðnaðarins haldið gæðanámskeið fyrir verktaka í verklegum framkvæmdum.
Auknar kröfur til gæðamála eru gerðar til fyrirtækja er standa að verklegum framkvæmdum. Verk og verkþættir eru orðnir af þeirri stærðargráðu að bjóða þarf verk út á Evrópska efnahagssvæðinu sem ýtir undir að menn hafi vottuð gæðakerfi hjá sér og geri kröfur um slíkt hið sama hjá undirverktökum.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að Landsvirkjun er á góðri leið með sín gæðamál. Fyrirtækið hefur lagt metnað sinn í það rafræna kerfi sem heldur utan um gæðahandbókina. Virk þátttaka starfsmanna er í hávegum höfð og er unnið að vottun fyrstu aflstöðvarinnar (Blöndu) um þessar mundir.
Lykilorð:
Greining
Gæðaferlar
Undirverktakar
Framkvæmdir
Landsvirkjun
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
landsvirk.pdf | 1,01 MB | Takmarkaður | Greining gæðaferla á verkfræði- og framkvæmdarsviði Landsvirkjunar - heild | ||
landsvirk_e.pdf | 148,29 kB | Opinn | Greining gæðaferla á verkfræði- og framkvæmdarsviði Landsvirkjunar - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
landsvirk_h.pdf | 174,93 kB | Opinn | Greining gæðaferla á verkfræði- og framkvæmdarsviði Landsvirkjunar - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
landsvirk_u.pdf | 152,17 kB | Opinn | Greining gæðaferla á verkfræði- og framkvæmdarsviði Landsvirkjunar - útdráttur | Skoða/Opna |