Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/10840
Markmið verkefnisins er að kanna hvað fellst í útinámi. Kannað er hvort að útinám er námsgrein sem nýtist í öllum grunnskólum landsins eða er þetta námsaðferð sem aðeins er nothæf í skólum sem hafa aðgang að skógi og grænum svæðum. Teknir voru fyrir tveir skólar sem eru ólíkir að því leitinu til að Borgarnesskóli er byggður í þéttbýli og mætti ætla við þrengri kost er varðar útisvæði og Kleppjárnsreykjaskóla sem er í strjálbýlli sveit þar sem náttúran er allt í kring en innan sama skólasvæðis.
Helstu niðurstöður könnunarinnar eru þær að þegar búið er að greina þessa tvo skóla, kemur útkoman töluvert á óvart. Báðir þessir skólar hafa nóg pláss á skólalóðinni og í nánasta umhverfi hans og með litlum breytingum er hægt að hafa fyrirtaks skólalóð
sem nýst gæti til útináms.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Edda_Utinam_BS2008.pdf | 2.05 MB | Open | View/Open |