Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/10866
Markmið með verkefninu var að beina sjónum að mikilvægi hentugra úrræða fyrir unglinga í áhættuhóp hér á landi byggða á áralangri reynslu og rannsóknum fagfólks hérlendis sem erlendis. Athyglin í verkefninu beindist að mikilvægu hlutverki umhverfisins í meðferð
unglinga. Núverandi úrræði skoðuð hér á landi og út fyrir landsteinana og var sjónum beint sérstaklega að Náttúru- og víðernismeðferð (Wilderness Therapy) og rannsóknum á árangri
hennar. Með niðurstöðum úr þeim rannsóknum er tvímælalaust hægt að fullyrða að náttúran og upplifanir henni tengd sem leiða til aukinnar reynslu og færni í að takast á við daglegt líf
ættu að vega þyngra í meðferðarúrræðum. Hugmyndafræðileg hönnun byggð á Náttúru- og víðernismeðferð ásamt öðrum mikilvægum þáttum eins og heilbrigðri tengslamyndun og ræktun hæfileika er svo lokahnykkurinn í verkefninu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
David_ritgerd.pdf | 1.48 MB | Opinn | Skoða/Opna |