Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/10907
Fyrirtæki og stofnanir innan íslenska byggingariðnaðarins hafa sýnt upplýsingalíkönum mannvirkja áhuga á undanförnum árum, jafnvel innleitt það og beitt við nokkur verkefni. Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvar íslenski byggingariðnaðurinn stendur við innleiðingu upplýsingalíkana mannvirkja eða eins og það nefnist á ensku, Building Information Modelling, skammstafað BIM. Skammstöfunin BIM hefur fengið alþjóðlega útbreiðslu og verður því notuð í rannsókn þessari.
Innleiðingarferli opinberra stofnanna á Íslandi og í nágrannalöndum verða skoðuð sem og Bandaríkjanna og þau borin saman og bil tilgreind. Niðurstöðurnar gefa í skyn að bil sé í innleiðingarferlinu á Íslandi, þar sem engar reglugerðir um notkun BIM eru í gildi. Opinberar stofnanir geta því aðeins sóst eftir að BIM sé notað, en ekki krafist þess.
Framkvæmd var könnun innan fyrirtækja og stofnanna innan íslenska byggingar-iðnaðarins til að varpa ljósi á hverjir notast við BIM og að hvaða marki. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á samvirkni milli lean construction og BIM. Í tengslum við það verður einnig kannað hvort íslenskur byggingariðnaður sé að tileinka sér aðferðir lean construction og þá að hvaða marki.
Af þátttakendum segjast 40% nota BIM, mest arkitektar og verkfræðingar. Niður-stöðurnar gefa í skyn að þroskastig BIM á Íslandi liggur á milli þroskastigs 1 og 2, þar sem enginn verktaki notast við BIM og aðeins eitt fyrirtæki segist notast lean construction.
Innleiðendur BIM á Íslandi sem og verkkaupar almennt, gætu hugsanlega nýtt sér niðurstöður rannsóknar þessarar við ákvörðun á innleiðingu BIM sem og næstu skrefum ferlisins. Niðurstöðurnar munu vonandi gefa skýrari mynd á stöðuna hérlendis og hvort eitthvað vantar uppá við innleiðingaferli BIM sem hefur það að leiðarljósi að stuðla að bættu ferli mannvirkjagerðar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
IngibjörgBirnaKj.Tilbúið040112.pdf | 1.56 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |