en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/1091

Title: 
  • Title is in Icelandic Tækifæri Eyjafjarðarsvæðisins á markaði funda og ráðstefna
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Það sem hefur hamlað framþróun íslenskrar ferðaþjónustu hefur lengi verið og er hve lélega arðbærni flest íslensk ferðaþjónustufyrirtæki búa við og hve nýting fjárfestinga á landsbyggðinni er dræm, sérstaklega utan háannar. Meginmarkmið þessa verkefnis er að kanna hvort að Eyjafjarðarsvæðið eigi möguleika á því að bæta stöðuna með áherslu á funda- og ráðstefnu markaðinn með tilliti til lykilárangursþátta, SVÓT-greiningar og þess hvað er að gerast á alþjóðlegum mörkuðum.
    Helstu niðurstöður:
    Fyrir Eyjafjarðarsvæðið að ná markaðsstöðu á ráðstefnu- og funda markaðnum er fyrst og fremst mikilvægt að styrkja innviði þá sem þurfa að vera til staðar til þess að uppfylla væntingar viðskiptaferðamanna og ráðstefnuhaldara. Sérstaklega er þá brýnt að bjóða allavega jafn góða uppbyggingu innviða og aðilar á höfuðborgarsvæðinu eru að bjóða upp á því það eru samkeppnisaðilar svæðisins og á þessu veltur hvort að funda og ráðstefnuhaldarar sjá sér hag og kosti í að halda fundi og ráðstefnur á Eyjafjarðarsvæðinu.
    Eyjafjarðarsvæðið hefur upp á heilmikið að bjóða sem áhugaverður ferðamannastaður og hefur svæðið samkeppnislegt forskot á önnur landsbyggðasvæði. Jafnframt hefur svæðið innviði til þess að halda fundi og ráðstefnur en einungis í litlu magni. Svæðið horfir þó fram á bjartari framtíð varðandi bætta aðstöðu til funda og ráðstefnuhalds eins og bættar samgöngur, menningarhús og aukna menntun.
    Lykilorð:
    - Eyjafjarðarsvæði
    - Ráðstefnur/fundir/hvataferðir
    - Tækifæri
    - Innviðir
    - Lenging ferðamannatíma

Description: 
  • Description is in Icelandic Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Accepted: 
  • Jan 1, 2003
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1091


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
fundirradstefnur.pdf909,56 kBMembersTækifæri Eyjafjarðarsvæðisins á markaði funda og ráðstefna - heildPDF
fundirradstefnur_e.pdf143,61 kBOpenTækifæri Eyjafjarðarsvæðisins á markaði funda og ráðstefna - efnisyfirlitPDFView/Open
fundirradstefnur_h.pdf155,24 kBOpenTækifæri Eyjafjarðarsvæðisins á markaði funda og ráðstefna - heimildaskráPDFView/Open
fundirradstefnur_u.pdf147,44 kBOpenTækifæri Eyjafjarðarsvæðisins á markaði funda og ráðstefna - útdrátturPDFView/Open