is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Meistaraverkefni í viðskiptadeild (MS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/10959

Titill: 
  • Samkeppnishæfni sjávarútvegs á Vestfjörðum
  • Titill er á ensku The competitive advantage of the seafood industry in the Westfjords of Iceland
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Vestfirðir eru landssvæði sem hefur byggst upp á sjávarútvegi sem hefur verið og er hornsteinn atvinnulífs svæðisins. Mikil umræða fer fram um greinina á Íslandi þar sem hún er ein af undirstöðuatvinnugreinum þjóðarinnar en einnig er mikil umræða innan svæðisins um greinina vegna stöðu hennar. Umræðan um sjávarútveg Vestfjarða er oftast byggð á tilfinningum en ekki hlutlægum staðreyndum og fræðilegri umfjöllun. Í þessari ritgerð er fjallað um samkeppnishæfni svæðisins með fræðilegum tilvísunum og hlutlægum upplýsingum sem eiga að svara hvort sjávarútvegur á Vestfjörðum sé samkeppnishæfur.
    Vegna skorts á gögnum þurfti að vinna með mikið af frumgögnum og byggja útreikninga á þeim en reynt var að gera það með þeim hætti að lykilgögn eins og samandregnir ársreikningar fyrirtækja Vestfjarða séu samanburðarhæfir við þær tölur sem liggja fyrir um
    sjávarútveg á landinu öllu.
    Helstu niðurstöður eru þær að rekstur sjávarútvegsfyrirtækja á Vestfjörðum gengur verr en rekstur sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi, sem segir til um lakari samkeppnishæfni svæðisins.
    Jafnframt er reksturinn ekki sjálfbær þar sem vestfirsku sjávarútvegsfyrirtækin munu ekki í óbreyttri mynd ráða við þær skuldbindingar sem þau standa frammi fyrir. Í niðurstöðunum
    verður ekki horft fram hjá því að viðskiptaumhverfið hefur ekki hjálpað til við að styrkja samkeppnisstöðu svæðisins en svæðið hefur átt undir högg að sækja á undanförnum árum.

Samþykkt: 
  • 19.3.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/10959


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Samkeppnishaefni sjavarutvegs a Vestfjordum.pdf1.03 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna