Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/10972
Í lokaverkefni þessu er til skoðunar nýlegt ákvæði sem sett var inn til styrktar minnihlutavernd í lögum nr. 2/1995, um hlutafélög. Kom það inn með lögum nr. 68/2010, um breytingu á lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um ársreikninga (minnihlutavernd o.fl.) í framhaldi af skýrslu Lagastofnunar Háskóla Íslands, um minnihlutavernd í hlutafélögum og einkahlutafélögum samanborin við norræna löggjöf.
Í ritgerðinni er fyrst farið almennt yfir hvað sé minnihlutavernd og það að meginreglan í hlutafélagalögunum sé að meirihlutinn ráði úrslitum mála. Næst er skoðuð meginregla minnihlutaverndar þ.e. 95. gr. og í beinu framhaldi skoðað ákvæði 95. gr. a. sem er nýjasta ákvæðið til verndar minnihlutanum. Þá er farið yfir stjórn og ábyrgð í hlutafélögum. Síðan eru skoðaðar greinar í norsku hlutafélagalögunum nr. 45/1997, og loks er lagt mat á það hvort grein 95. a. í lögum nr. 2/1995 um hlutafélög styrki þá minnihlutavernd sem var til staðar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_ritgerð_Ragna_S_Ragnarsdóttir_3.pdf | 579.85 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |