Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11032
Krosstenging fjöl -eða fásykra á ensím er öflug leið til að auka stöðugleika þeirra. Þannig má gera ensím hæfara til starfa við aðstæður sem þau allajafna myndu tapa virkni sinni við. Þetta má hagnýta í ýmsum tilgangi, t.d. í líftækniðnaði. Samkvæmt niðurstöðum þessa verkefnis hefur kítósanfásykra talsvert stöðugleikaaukandi áhrif á nautatrypsín við hátt hita -og sýrustig. Uppleyst kítósan í trypsínlausn hefur mikið minni áhrif. Við hátt hitastig jókst virkjunarorka eðlissviptingar um 33% eftir krosstengingu. Mikið virknitap verður þó við krosstengingu miðað við frjálst trypsín og er það helsti ókosturinn við krosstenginguna
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bsritgerð.pdf | 1.97 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |