Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/11143
Í ritgerð þessari er fjallað um stjórnskipulegan rétt forseta íslands. Skoðuð er þróun kenninga fræðimanna um forsetaþingræði og mismunandi tegundir þess reifaðar. Greinar stjórnarskrárinnar er varða forseta Íslands eru skoðaðar í sögulegu ljósi og túlkunum fræðimanna á stöðu forsetaembættisins gagnvart stjórnarskrá gerð skil.
Skoðuð er sýn mismunandi forseta á stöðu embættisins og aðgerðir þeirra í samræmi við þá sýn, með áherslu á núverandi forseta, Ólaf Ragnar Grímsson.
Með þessu er leitast við að svara þremur meginspurningum sem eru eftirfarandi:
1. Er Ísland forsetaþingræðisríki (e. semi-presidential)?
2. Hve mikil eru áhrif forsetans? Ber ríkisstjórnin einungis ábyrgð gagnvart meirihluta þingsins (e. premier-presidential) eða sækir ríkisstjórnin umboð sitt bæði til meirihluta þingsins og til forsetans (e. president-parliamentary)?
3. Er stjórnsýsluleg umgjörð forsetaembættisins svo óljós að einstakir forsetar geti ráðið svarinu við spurningu 2?
Í lokin eru niðurstöður dregnar saman og reynt að varpa ljósi á stjórnsýslulega umgjörð embættis forseta Íslands.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forseti_Islands_lokaritgerd_Final.pdf | 461.24 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
IngaKapa.pdf | 75.84 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna |