Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/1125
Þetta lokaverkefni við fjármálasvið rekstrar-og viðskiptadeild Háskólans á Akureyri fjallar um úthýsingu.
Markmið verkefnisins er tvíþætt annars vegar að gera könnun varðandi þörf á ákveðinni þjónustu í formi úthýsingar fyrir fyrirtæki og smærri verktaka. Hins vegar er markmið verkefnisins, að stofna hugsanlega nýtt úthýsingarfyrirtæki með nýrri þjónustu í kjölfar könnunarinnar. Ætlunin er að veita innsýn í úthýsingarþjónustu og upp á hvað hún býður.
Unnið er út frá eftirfarandi rannsóknarspurningum.
• Hver sér um fjármál fyrirtækisins?
• Hefur þú heyrt um úthýsingu?
• Gætir þú hugsað þér að nýta slíka þjónustu?
Gerð var könnun hjá litlum fyrirtækjum og smáverktökum. Úrtakið voru þrátíu fyrirtæki. Könnunin var lögð fyrir 15.-29. mars 2004 og eru helstu niðurstöður þær að 86.6% aðspurðra sjá sjálfir um fjármál fyrirtækja en 13.4% eru með starfsmann til þess að sjá um þau mál. Þegar spurt var um hvort viðkomandi hafði heyrt um úthýsingu urðu niðurtöður þær að aðeins 10% hafa heyrt um úthýsingu og þar af leiðandi 90% aldrei heyrt hana nefnda. Áhugi stjórnenda á úthýsingu kemur greinilega fram þar sem aðeins 26.7% svarenda gætu ekki hugsað sér að nýta þjónustuna en 73.3% vildu gjarnan nýta sér hana.
Lykilorð: Úthýsing, markaðskönnun, fjármál fyrirtækja,Vistun.