Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/11263
Á námskeiði 1 er farið í grunnþætti leiklistarinnar. Nemendur vinna með traust, látbragð, rýmisvitund og samvinnu en einnig með einbeitingu og athygli. Þá verður unnið með látbragðsleik, hlustun og líkamsvitund. Áhersla er lögð á hópa og senuvinnu ásamt persónusköpun. Einnig er farið í háar og lágar stöður í gegnum spuna og unnið með stuttar senur í spuna. Námskeiðið er grunnnámskeið í leiklist og eiga nemendur að þekkja grunnþætti leiklistarinnar að því loknu.
Bókin leggur áherslu á að nemendur geti leikið á óþvingaðan og sannfærandi hátt fyrir framan aðra, kunni að leika með grímur, geti á skapandi hátt tekið þátt í fjölbreytilegum spunaverkefnum, kunni undirstöðuatriði látbragðsleiks, geti fjallað um og metið eigin frammistöðu og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt og gert grein fyrir forsendunum; séu færir um að ræða þær hugmyndir sem liggja að baki eigin persónusköpun.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Rannveig Þorkelsdóttir7.pdf | 536,83 kB | Lokaður | Æfingabók | ||
| Rannveig-ritgerð.pdf | 742,4 kB | Lokaður | Greinargerð |