Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/11337
Ritgerð þessi er í hnotskurn umfjöllun um list og minjagripagerð í Kulusuk þorpi á Austur Grænlandi. Ég byggi skrif mín á reynslu sem nær yfir rúman áratug og styðst því mikið við etnógrafískar lýsingar og viðtöl sem ég hef tekið við ákveðna einstaklinga í Kulusuk. Auk almennar lýsingar á lífi fólks sem selur handverk sitt sem minjagripi til ferðamanna er samtvinnuð fræðileg umfjöllun um list og þau hugtök sem tengjast því viðfangsefni. Þar leita ég í smiðju mannfræðinga sem fjallað hafa um hugtakið list og bendi á ólíkar nálganir þeirra á viðfangsefnið. Ritgerðin var lengi í smíðum þar sem umfang hennar er tiltölulega mikið sem meistarverkefni í mannfræði. Ekki er um eina endanlega niðurstöðu í lokin nema að list og minjagripagerð í Kulusuk er á hverfandi hveli og fer það saman við byggðaþróun síðustu áratuga í Grænlandi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Guðrún Eyjólfsdóttir.pdf | 2.61 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |