Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/11346
Íslenskt efnahagslíf gekk í gegnum miklar breytingar á síðastliðnum þremur áratugum. Hagkerfið umturnaðist frá því að vera lítið og lokað, kyrfilega læst inni með höftum á verslun og viðskipti, í það að verða skyndilega hluti af stórum alþjóðlegum markaði. Við þessar breytingar gjörbreyttist það umhverfi sem íslensk fyrirtæki störfuðu við. Þessar vendingar hafa óhjákvæmilega kallað á ýmsar breytingar í uppbyggingu og
formgerð fyrirtækja landsins en markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á þær breytingar og þær ástæður sem þar geta legið að baki. Unnið var með gögn úr ársreikningum þrjátíu stærstu fyrirtækja landsins, á hverjum tíma, þrjátíu ár aftur í tímann (1980-2010). Gagnanna var aflað úr árlegu tölublaði tímaritsins Frjálsrar Verslunar sem fjallar um stærstu fyrirtæki landsins. Megináhersla var lögð á að skoða þær stærðir sem segja til um þróun í stærð og skuldsetningu fyrirtækjanna. Reynt var að skýra þær breytingar sem urðu á þessum tveimur stærðum með vísun í hvoru tveggja fræðikenningar og þær breytingar á ytri umhverfi íslenskra fyrirtækja sem höfðu og voru að eiga sér stað.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
rigerð LTH.pdf | 914.93 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |