Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/11353
Þessi greinargerð er hluti af meistaraverkefni mínu í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Greinargerðin skiptist í tvo meginkafla. Annars vegar fjalla ég um vinnuferlið allt frá því þegar ég ákvað að gera heimildamynd sem lokaverkefni þar til ferlinu lauk með skilum vorið 2012. Hins vegar er fræðilegur kafli sem snertir á álitamálum sem ég kynntist þegar heimildamyndin var í vinnslu og tengjast heimildamyndagerð sem miðlun, siðferðilegum spurningum sem vöknuðu í ferlinu, skilgreiningu minnar myndar innan íslenskrar heimilda-mynda¬gerðar og síðan mögulegri útgáfu myndarinnar og hugsanlegri dreifingu.
Með greinargerðinni fylgir DVD diskur með Íshokkí á Íslandi - heimildamynd um íþrótt á uppleið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
AlmaSigrun Sigurgeirsdóttir.pdf | 779.86 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Geisladiskur fylgir prentaða eintakinu sem er varðveitt á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni