Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/11390
Greinagerð þessi tilheyrir meistaraverkefni mínu í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands og fjallar um vinnsluferli miðlunarhluta verkefnisins og aðferðafræðilegar spurningar þar aðlútandi. Miðlunarleiðin sem valin var er heimildarmynd sem hefur fengið nafnið Svartur er litur gleðinnar og undirtitilinn Heimildarmynd um líf og störf listakonunnar Jóhönnu Krisínar Yngvadóttur. Auk þess að fjalla um sjálft vinnuferlið er greint frá aðferðafræði við undirbúning og vinnslu myndarinnar með sérstakri áherslu á aðferðir við nálgun kvikmyndagerðarmannsins við viðfangsefnið. Hugað er að ýmsum miðlunarleiðum, kostir þeirra og gallar við miðlun efnis af þessu tagi eru vegnir og metnir, rök færð fyrir vali á miðlunarleið og aðrir miðlunarmöguleikar eru skoðaðir. Myndin er 40 mínútur og byggist á viðtölum við tíu einstaklinga auk þess sem eldra kvikmyndaefni, ljósmyndum og bréfum er ætlað að varpa ljósi á líf og störf Jóhönnu Kristínar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Jóhann Kristín greinargerð lokautgafa 2 MAI ATH.pdf | 1.28 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |