Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/11404
Húsmæðraskólalíf. Heimildamynd um líf á húsmæðraskólum fyrir 1980
Þessi greinargerð er hluti af lokaverkefni við hagnýta menningarmiðlun. Í
henni er fjallað um vinnuferlið við framleiðslu heimildamyndarinnar
Húsmæðraskólalíf, sem fjallar um lífið á húsmæðraskólum á 6., 7. og 8. áratug 20.
aldar og byggist á frásögnum 12 kvenna úr sjö húsmæðraskólum. Í
greinargerðinni er heimildamyndin sett í samhengi við fræðilega umfjöllun um
heimildamyndagerð auk þess sem siðferðileg álitamál og ábyrgð
kvikmyndagerðarmanna eru dregin fram. Þá er eftirtöldum spurningum
svarað: Hvers vegna var þetta viðfangsefni valið? Hver er fræðilegur tilgangur
myndarinnar Húsmæðraskólalíf? Hvernig var vinnuferlið? Hvernig
heimildamynd er Húsmæðraskólalíf? Hvaða aðrir miðlar koma til greina við
miðlun þessa efnis?
| Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
|---|---|---|---|---|---|
| husmaedraskolalif-greinargerd3.pdf | 747,37 kB | Open | Heildartexti | View/Open |
Note:
Geisladiskur fylgir prentaða eintakinu sem er varðveitt á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni