is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1146

Titill: 
  • Stærðfræðikennsla í grunnskólum : viðtöl við stærðfræðikennara á efsta stigi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Efnið sem er til umfjöllunar í þessari ritgerð er stærðfræðikennsla í grunnskólum. Fjallað er um allar námskrár sem gefnar hafa verið út og tengingu þeirra við sögulega þróun stærð¬fræði¬¬kennslu þar sem kennsluhættir og kennslubækur eru megin viðfangsefnið.
    Í ritgerðinni leita ég svara við þremur rannsóknarspurningum með hliðsjón af fræðilegri umfjöllun og viðtölum sem ég átti við fjóra starfandi stærðfræðikennara á efsta stigi. Kennararnir eru allir menntaðir stærðfræðikennarar frá KHÍ með minnst fjögurra ára starfsreynslu. Rannsókarspurningarnar eru: Hvaða kennslu¬aðferðir eru algengastar í dag, með hliðsjón af söguágripi? Eiga kennslu¬aðferðirnar þátt í því hve mörgum nemendum gengur illa í stærðfræði? Hver er staða nemenda í stærð¬fræði við
    lok grunnskóla?
    Helstu niðurstöður eru þær að kennararnir nota alls sex kennsluaðferðir, samkvæmt flokkunarkerfi Ingvars Sigurgeirssonar, en tvær þeirra eru algengastar, útlistunarkennsla og þulunám-þjálfunaraðferðir. Þessar algengustu aðferðir henta flestum nemendum, að mati kennara, og því vart hægt að kenna kennslu¬aðferðum um hve margir nemendur eiga í erfiðleikum með stærðfærði. Kennurum bar flestum saman um að staða nemenda við lok grunnskóla væri almennt nokkuð góð og sagði einn kennarinn jafnframt, að auka mætti kröfurnar enn frekar.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2002
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1146


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
staerdfr.pdf579.41 kBTakmarkaðurStærðfræðikennsla í grunnskólum - heildPDF
staerdfr_e.pdf81.74 kBOpinnStærðfræðikennsla í grunnskólum - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
staerdfr_h.pdf107.94 kBOpinnStærðfræðikennsla í grunnskólum - heimildaskráPDFSkoða/Opna
staerdfr_u.pdf61.28 kBOpinnStærðfræðikennsla í grunnskólum - útdrátturPDFSkoða/Opna