Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11470
Árið 2010 sendi breski rithöfundurinn Ian McEwan frá sér skáldsöguna Solar, húmoríska sögu um afdankaðan nóbelsverðlaunahafa í eðlisfræði. Eðlisfræðingurinn skellir sér á bólakaf í nýsköpunarheiminn þegar hann áttar sig á því hversu mikla fjármuni er mögulegt að kreista út úr tækniþróun tengdri lausnum á loftslagsbreytingum jarðarinnar. Vegna kaldhæðinnar afstöðu höfundarins er óljóst hvert álit hans á loftslagsumræðunni er. Fyrsta markmið ritgerðarinnar er að gera grein fyrir þeirri afstöðu og hvað hún þýðir fyrir túlkun bókarinnar. Í greinunum Warm Words: How are we telling the climate story and can we tell it better? og Warm Words II: How the climate story is evolving and the lessons we can learn for encouraging public action, sem unnar voru að beiðni breska Verkamannaflokksins, er loftslagsumræðan á Bretlandseyjum greind. Fjölda mismunandi orðræða er að finna innan umræðunnar og var markmið greinanna að útskýra þær og vægi þeirra. Meðal annars er minnst sérstaklega á hvernig andstæðir pólar umræðunnar eiga það til að samræmast þeim ólíku pólitísku stefnumálum sem fjölmiðlar landsins aðhyllast. Þannig eru greinar í vinstrisinnuðum blöðum og tímaritum líklegri til að viðurkenna tilvist hnatthlýnunar, og hlutverk mannsins í þeirri þróun, en greinar í hægrisinnuðum fjölmiðlum. Tilgangur rannsóknarinnar er að athuga hvort ritdómar um Solar í breskum dagblöðum falli að þessari niðurnjörvun umræðunnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ingolfur_Halldorsson_BA_Ritgerd_2012.pdf | 712.8 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |