is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Meistaraverkefni í viðskiptadeild (MS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11489

Titill: 
  • Meðferð í afplánun
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Sagt er frá þeim úrræðum sem í boði eru fyrir fanga á Íslandi og þeim fáu meðferðarræðum sem til staðar eru í okkar þjóðfélagi. Vímuefnanotkun fanga er þekkt vandamál, mikilvægt er að bregðast við þeim vanda sem steðjar að. Fagleg vinnubrögð geta skipt sköpum í starfi sem þessu. Mikilvægt er að aðilar sem hlotið hafa menntun og viðeigandi þjálfun starfi með föngum að því marki að losna úr viðjum vímunnar. Ætlunin er ætlað að setja fram niðurstöðu rekstrar meðferðarstofnunar fyrir fanga sem hlotið hafa óskilorðsbundna dóma og sýna fram á úrræði sem hugmyndin er að starfa að.
    Sú spurning sem lagt er upp með er hvort af hljótist fjárhagslegur ávinningur fyrir ríkið með kaup á þjónustunni sem ætlunin er að skili sér í færri endurkomum í fangelsi? Ef árangur á að nást með betrunarvist verður að bjóða upp á nægjanleg viðeigandi úrræði. Verkefnið skiptist í fræðilegan kafla og viðskiptaáætlun. Í fræðilega kaflanum er fjallað um aðstæður fanga fyrr og nú, farið yfir þau úrræði sem í boði eru og greint frá þeim fjölda fanga sem háðir eru vímuefnum, brjóta af sér og hljóta dóm fyrir. Sýnt verður fram á þörfina fyrir úrræði fyrir vímuefnaháða fanga. Í viðskiptaáætluninni er fjallað um viðskiptahugmyndina, hvernig þjónustan mun verða framkvæmd og kostnaðinn við að hrinda hugmyndinni í framkvæmd. Tilgangurinn með vinnu verkefnisins er að sýna fram á hagkvæmni þess að veita meðferð í afplánun, sem skilar sér í sparnaði í fjármunum fyrir íslenska ríkið í færri endurkomum í afplánun.

Samþykkt: 
  • 8.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11489


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
DagnýArnþórs.pdf1.14 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna