is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11521

Titill: 
  • Konur í fangelsum: Mæður í fangelsum og börn þeirra
  • Titill er á ensku Women in prison: Incarcerated mothers and their children
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður fjallað um konur og mæður í fangelsum, hvernig kvennafangelsin á Íslandi og Norðurlöndunum eru og þau borin saman. Fjallað er um börn með mæðrum sínum í fangelsi og hvort það sé hagur barna að vera hjá móður í afplánun.Hlutfall kvenna í fangelsi er um 5% af heildarfjölda fanga og er því ekki hátt hlutfall. Fá úrræði eru fyrir konur sem afplána fangelsisdóma á Íslandi, þegar þær taka út refsingu sína. Á Norðurlöndunum eru lög og reglur um að mæður fái að hafa börn með sér á meðan afplánun stendur. En á Íslandi er mæðrum leyft að hafa börn hjá sér til 18 mánaða aldurs. Tengsl móður við barn meðan hún afplánar dóm getur haft mikil áhrif á þau bæði. Erfitt getur verið að bera saman vistunarúrræði karla og kvenna vegna þess í hve miklum minnihluta konur eru í fangelsum. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til að mikil þörf er á betri aðstöðu fyrir konur í fangelsum á Íslandi og brýnt að móta heildstæða stefnu um vistun kvenfanga. Rannsóknir sýna að mikilvægt er að viðhalda fjölskyldutengslum meðan kona afplánar refsivist en það getur reynst erfitt ef heimabyggð konu er langt frá fangelsinu. Hvort barn eigi að fá að vera með foreldri í fangelsi ætti að meta í hverju tilfelli fyrir sig. Rannsóknir á Norðurlöndum hafa einnig sýnt að hagur barns sé í þeim tilvikum oft á tíðum ekki nægilega tryggður.
    Lykilorð: Réttarfélagsráðgjöf, félagsráðgjöf, konur í fangelsi, mæður í fangelsi, börn, úrræði, afbrot kvenna.

Samþykkt: 
  • 9.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11521


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hildigunnur Jónasdóttir.pdf629.69 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna