Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/11529
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.A. prófs í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni hennar er líkamsmynd unglingsstúlkna. Fjallað verður um unglingsárin og sjálfsmyndina en talið er að sjálfsmynd einstaklingsins taki oft miklum breytingum á unglingsárunum. Einn þáttur sjálfsmyndarinnar er líkamsmynd og verður rætt um þætti sem hafa áhrif á þróun hennar, svo sem fjölskyldu, jafninga og fjölmiðla. Fjallað verður um áhrif fjölmiðla á líkamsmynd unglingsstúlkna, þær staðalmyndir sem fjölmiðlar birta og um lýðnetið, þann fjölmiðil sem unglingar nota hvað mest, og áhrif aukinnar netnotkunar á líkamsmynd. Því næst verður stiklað á stóru í umfjöllun um félagsráðgjöf og meginhlutverk félagsráðgjafa. Að lokum verður fjallað um mikilvægi þess að efla jákvæða líkamsmynd og þær leiðir sem farnar hafa verið til þess að efla líkamsmynd stúlkna á Íslandi.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaeintak1.pdf | 334.3 kB | Open | Heildartexti | View/Open |