Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1174
Þetta lokaverkefni til B.E.d. prófs í kennaradeild er um foreldrasamstarf í leikskólum. Ég tel að gott samstarf á milli foreldra og leikskóla sé mikilvægt, það er ein aðalforsenda þess að barninu líði vel í leikskólanum.
Markmiðið með verkefninu er að svara þremur rannsóknarspurningum. Tvær spurningar verða teknar fyrir í fræðilegum kafla og eru þær, Hvert er hlutverk leikskólans í samstarfi við foreldra? Og Hvert er hlutverk foreldra í samstarfi við leikskólann? Ég greini frá helstu leiðum sem farnar eru í samstarfi við foreldra, s.s. foreldrafélög og foreldrasamtöl. Einnig fjalla ég um uppeldisfræðilega skráningu og hvernig hún nýtist við að gera starfið í leikskólanum sýnilegra foreldrum.
Þriðju spurningunni leitast ég við að svara í rannsókn sem ég vann í tengslum við foreldrasamstarf, Hverjar eru áherslur leikskólakennara í foreldrasamstarfi? Rannsóknin er eigindleg og gagnaöflun var unnin í formi viðtala. Ég tók viðtöl við fjóra leikskólakennara og komu fram mismunandi hugmyndir og vangaveltur.
Megin niðurstaðan var sú að allir leikskólakennararnir telja foreldrasamstarf vera mikilvægt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
forsa.pdf | 928.28 kB | Opinn | Foreldrasamstarf í leikskólum - heild | Skoða/Opna |