Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/11759
Þessi ritgerð fjallar um leturform og áhrif þeirra á læsileika, þar sem áhersla er lögð á læsileika fyrir lesblinda einstaklinga.
Leitast er svara við hvort eitthvert ákveðið letur henti betur fyrir lesblinda. Skilgreint er lestrarferlið, hvað læsileiki er og hvað hefur áhrif á þetta tvennt.
Athugað er hvaða áhrif leturform hefur á lestur og hver þáttur hans er á myndun orðmynsturs sem við notum við lestur á svo kallaðri sjónrænni leið.
Deilt er um hvort sé læsilegra fyrir lesblinda, þverendaletur eða steinskriftarletur. Þá er spurning um hvort nauðsynlegt sé að hanna sérstakt letur fyrir þá, eða hvort árangur skilist í vana á lestri sama leturs.
Niðurstöður gefa til kynna að læsileiki liggi í leturformum og hönnun þeirra, þar sem þáttur þeirra í lögun orðmynstra er mikilvægur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd.pdf | 244,5 kB | Lokaður | Heildartexti |