is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11761

Titill: 
  • Komur erlendra kvikmyndagerðarmanna til Íslands
  • Titill er á ensku Effects of foreign Filmmakers in Iceland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari rannsókn er litið á heimsóknir erlendra kvikmyndagerðarmanna til Íslands og hagræn áhrif af komum þeirra. Þá er athugað hvað íslensk stjórnvöld hafa gert til að laða þá til landsins og þær aðgerðir bornar saman við aðgerðir erlendra ríkja. Að lokum er skoðað hvort erlendir kvikmyndagerðarmenn séu hinir fullkomnu ferðamenn. Við gagnaöflun var notast við eigindlegar rannsóknir, tekin voru opin viðtöl við tvo aðila í kvikmyndaiðnaði á Íslandi sem unnið hafa að því að kynna Ísland sem vænlegan áfangastað til kvikmyndatöku. Auk þess var notast við fyrirliggjandi gögn og tölulegar upplýsingar. Niðurstöður rannsóknar sýna meðal annars að íslensk stjórnvöld hafa hannað aðgerðir sínar að einhverju leiti að erlendri fyrirmynd og þeirra helsta verk var að hækka hlutfall endurgreiðslu á framleiðslukostnaði í 20%. Auk þess hafa starfsmenn Íslandsstofu unnið mikið starf við að kynna landið fyrir erlendum kvikmyndaframleiðendum. Margt bendir til þess að erlendir kvikmyndagerðarmenn séu eftirsóknarverðir gestir fyrir ferðaþjónustu sem og aðrar þjónustustéttir á Íslandi þar sem þeim fylgir töluverðar gjaldeyristekjur að meðaltali á hvern einstakling, meiri en hjá hinum almenna ferðamanni. Þar að auki geta þeir haft jákvæð áhrif á umhverfi og innviði landsins.

Samþykkt: 
  • 21.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11761


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Markús Benediktsson - BS verkefni.pdf322.88 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna